Fara í efni

Annað land, annað líf

Sýningin Annað land, annað líf gefur góða mynd af lífi þeirra þúsunda Íslendinga sem fluttust til „nýja heimsins“. Sýningin var unnin af Byggðasafni Skagfirðinga fyrir Vesturfarasetrið árið 1996 og er í eigu Byggðasafnsins.

Raktar eru í máli og myndum ástæður þess að um fjórðungur þjóðarinnar fluttist búferlum til Ameríku. Margvísleg harðindi, aflabrestur og erfiðar félagslegar aðstæður eru þættir sem fjallað er um á sýningunni enda eru þeir helstu orsakavaldar fyrir hinum mikla fólksflótta. Leitast er við að sýna á sem gleggstan hátt hvernig Íslendingar bjuggu á seinni hluta 19. aldar. Sýnt er á kortum hvaðan fólk fluttist og hve margir og hver heimkynni þeirra urðu vestan hafs. Einnig er lýst væntingum fólksins, undirbúningi fyrir brottflutning, ferðalaginu sjálfu og aðstæðum sem biðu þess er vestur var komið. Nánari upplýsingar um sýninguna má nálgast á vef Vesturfarasetursins