Fara í efni

Fornleifadeildin

Fornleifadeild Byggðasafns Skagfirðinga var sett á fót árið 2003 og stendur fyrir og stuðlar að rannsóknum á menningarminjum í Skaga­firði og víðar. Starfsemi deild­ar­innar skipt­ir verulegu máli fyrir fag­leg störf safnsins og ímynd þess ásamt því að efla það til fjöl­breyttari rannsókna, fag­legrar úrvinnslu og betri minjaverndar.

Frá fornleifarannsókn á vegum Skagfirsku kirkju og byggðasögurannsókninni í Keflavík á Hegranesi.

Rann­sóknar­starfsemi deildarinnar innan Skagafjarðar markast af rannsóknastefnu safnsins. Lögð er áhersla á að skapa þekkingu á skagfirsku minja­umhverfi, bæði með frumrannsóknum og úrvinnslu og samþættingu rannsókna sem farið hafa fram í héraðinu, í þeim tilgangi að byggja upp héraðsbundna þekkingu, efla áhuga og vitund um sögu og umhverfi og fjölga möguleikum til að nýta menningarminjar, t.d. í ferðaþjónustu. Einnig er áhersla lögð á rannsóknarsamstarf við ýmsa aðila, bæði innan héraðs og utan sem og við erlenda aðila.

Rannsóknir skapa nýja þekkingu og eru forsendur fræðslu og miðlunar en rannsóknum deildarinnar er miðlað áfram t.d. á heimasíðu, samfélagsmiðlum, með umfjöllun í fjölmiðlum, á formi fyrir­lest­ra, rannsóknaskýrsla, greinaskrifa bæði í fræðileg rit og rit almenns eðlis og með sýningagerð.

Vegna samkeppnisumhverfis fornleifa­rann­sókna á Íslandi er rekst­ur deildarinnar fjárhagslega aðskilinn frá safn­inu og fjárumsýsla henn­ar ekki tengd annarri starfsemi þess. Fornleifa­deild­in er ekki, frem­ur en safnið, rekin í hagnaðarskyni.

Hér má nálgast yfirlit yfir útgáfu deildarinnar.
Hér má nálgast upplýsingar um starfsfólk deildarinnar.