Fara í efni

Námskeið í torfhleðslu 10.-12. september 2021

Námskeið í torfhleðslu 10.-12. september 2021

Námskeið í torfhleðslu verður haldið á Tyrfingsstöðum í Skagafirði dagana 10.-12. september næstkomandi. Athugið að námskeiðið fer aðeins fram í samræmi við gildandi sóttvarnarreglur og ástandið í samfélaginu í september.

Námskeiðslýsing 
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa áhuga á að læra að byggja úr torfi og megináhersla verður á verklega kennslu. Kennd verða meginatriði í efnisvali, torfstungu og torfskurði og helstu hleðsluaðferðir með streng og klömbruhnausum. Ætlunin er að klára að hlaða veggi og tyrfa yfir hlöðu á Tyrfingsstöðum. Nemendum verða útveguð helstu verkfæri á staðnum, s.s. stunguskóflu og torfljá.

Helstu markmið námskeiðsins eru að nemendur
- Þjálfist í torfhleðslu og skurði, tileinki sér góðar vinnureglur við viðgerðir og umgengni fornra og friðaðra mannvirkja
- Þekki helstu hugtök, verkfæri og hleðslugerðir er tíðkast í torfhleðslu  
- Geti hlaðið og gengið frá torfvegg með klömbruhnaus og/eða streng 

Hvænær: 10.-12. september 2021, kl. 9-16

Hvar: Tyrfingsstaðir á Kjálka í Skagafirði

Kennari: Helgi Sigurðsson hjá Fornverki ehf.

Verð: 65.000 kr. Innifalið; efni, áhöld, kaffiveitingar og léttur hádegisverður. Fornverkaskólinn minnir á fræðslusjóði stéttarfélaganna og niðurgreiðslu þeirra vegna þátttöku á námskeiðum. Kynntu þér réttinn hjá þínu stéttarfélagi.

*Athugið að nemendur þurfa sjálfir að sjá um gistingu og mat utan námskeiðs.

Hvað þarf að hafa með: Hlýjan fatnað, hlífðarföt (pollagalla), vinnuhanska og stígvél/góða skó. Torftakan fer m.a. fram í votlendi og því viðbúið að þátttakendur verði moldugir og blautir.

Fyrirspurnir og skráning á námskeiðið: sendist til Ingu Katrínar Magnúsdóttur á ingakatrin@skagafjordur.is. Vinsamlegast sendið eftirfarandi upplýsingar með skráningu: fullt nafn, heimilisfang, kennitölu og símanúmer.

Fjöldi þátttakenda: Lágmark 6

*Þeim er sækja námskeið Fornverkaskólans er bent á að huga að eigin tryggingum, en Fornverkaskólinn er ekki ábyrgur gagnvart slysum.

Námskeið í torfhleðslu.