Fara í efni

Mark Watson dagurinn

Í tilefni af afmæli enska aðalsmannsins Mark Watson stendur Byggðasafn Skagfirðinga fyrir dagskrá í Glaumbæ þriðjudaginn 18. júlí.
Watson var mikill Íslandsvinur og eigum við honum margt að þakka, þar með talið rausnarleg peningagjöf til viðgerða á gamla torfbænum í Glaumbæ árið 1938 sem átti sinn þátt í að bærinn hefur varðveist.
Watson hefur jafnframt verið titlaður bjargvættur íslenska fjárhundsins og er afmælisdagur hans "Dagur íslenska fjárhundsins". Af þessu tilefni ætla íslenskir fjárhundar að heimsækja safnið. Hundarnir eru ljúfir og spakir og óhætt er að klappa þeim með leyfi eigenda.
Dagskráin hefst klukkan 13 og stendur til klukkan 15 síðdegis.
Börnum verður boðið að stíga á bak á gæðingum frá Syðra-Skörðugili og á svæðinu verða íslenskir fjárhundar sem hægt verður að klappa og kjassa með leyfi eigenda. Þá munu safnverðir Byggðasafnsins segja nokkur orð um Mark Watson.
Eigendur íslenskra fjárhunda eru sérstaklega hvattir til að líta við, en í tilefni dagsins er frítt á safnið fyrir eigendur íslenskra fjárhunda í fylgd með hundunum.
Ókeypis aðgangur er fyrir börn yngri en 18 ára og við minnum lögheimilisíbúa Skagafjarðar á ársmiðann, sem gildir í eitt ár frá kaupum hans óháð fjölda heimsókna.
Opið er á kaffihúsi safnsins í Áshúsi en þar er alltaf heitt á könnunni og nýbakað góðgæti.
Verið velkomin í Glaumbæ!
/
To celebrate the birthday of the englishman Mark Watson, the Skagfjörður Heritage Museum will host festivities at Glaumbær on July 18th.
Watson had great interest in Iceland and generously donated money for repairs to the old turf farm at Glaumbær in 1938. The turf farm is preserved today because of Watson's contributions.
Watson is also recognized as the savior of the Icelandic Sheepdog breed. Therefore, his birthday is generally celebrated as "Icelandic Sheepdog Day". To celebrate, Icelandic sheepdogs will be visiting the museum area. The dogs are sweet, smart, and friendly. It is safe to pet them with the owners permission.
The festivities start at 1 pm and last until 3 pm. Children will be able to go horseriding, some Icelandic sheepdogs will be in the museum area and the curators will tell guests about Mark Watson.
In the museum's café, Áshús, coffee, tea and baked goods will be available.
Welcome to Glaumbær!