Fara í efni

Hrekkjavaka þann 28. október

Sögustund og skuggalísur í baðstofunni.
Sögustund og skuggalísur í baðstofunni.
Það verður hryllilega gaman í Glaumbæ laugardaginn 28. október frá kl. 18-21!
Sýningarnar í gamla bænum taka á sig skuggalega mynd og Miklabæjar-Sólveig og fleiri fara á stjá.
Í baðstofunni verða draugasögur og fróðleikur um gömul hindurvitni og uppruni hrekkjavökunnar til umfjöllunar.
Í Áshúsi verður smá vinnustofa fyrir yngri kynslóðina þar sem hægt verður að skera út grasker og rófur.
Einnig verður mögulegt að kaupa léttar veitingar.
Börn 12 ára og yngri skulu vera í fylgd með fullorðnum og það gæti verið betra fyrir viðkvæmar sálir á öllum aldri að hafa fylgdarfólk sér til halds og trausts.
Aðgangur er ókeypis fyrir börn undir 18 ára aldri og grímuklædda fullorðna.
Við minnum á ársmiðana þar sem íbúar héraðsins þurfa einungis að greiða aðgangseyri einu sinni (2.000 kr. almennt verð en 1.700 kr. fyrir eldri borgara, öryrkja og námsmenn) og fá þá miða sem gildir í heilt ár frá kaupum og geta í kjölfarið komið hvenær sem er og eins oft og þeir vilja þeim að kostnaðarlausu.