Fara í efni

Starfsfólk óskast!

Finnst þér fortíðin heillandi? Hefur þú áhuga á sögu og minjum? Viltu starfa í fallegu umhverfi í góðum félagsskap? Byggðasafn Skagfirðinga auglýsir eftirfarandi störf laus til umsóknar; Verkefnastjóra matarupplifunar, sumarstörf við safnvörslu og í kaffihúsi. 

  • Byggðasafn Skagfirðinga auglýsir eftir verkefnastjóra matarupplifunar. Verkefnastjóri matarupplifunar hefur yfirumsjón með kaffihúsi safnsins, m.a. eldhúsi, þjónustu við gesti, verkstýringu starfsfólks, annast innkaup á aðföngum, matseld og bakstur eftir atvikum. Um samþætt starf er að ræða en eftir að almennum opnunartíma kaffihússins lýkur yfir veturinn gengur starfmaðurinn í önnur verk á safninu, meðfram því að sinna undirbúnings- og þróunarvinnu fyrir matartengda upplifun safngesta. Sveigjanleiki er í boði varðandi starfshlutfall. Tímabil ráðningar er eitt ár, með möguleika á framlengingu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið má finna hér.

    Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2024. 

  • Byggðasafn Skagfirðinga auglýsir eftir sumarstarfsfólki á kaffihús safnsins í Glaumbæ í 100% starfshlutfalli. Í starfinu felst framreiðsla og undirbúningur á mat, móttöku gesta, söluuppgjör, frágangur og þrif og önnur tilfallandi verkefni. Tímabil ráðningar er samkomulagsatriði en um er að ræða tímabilið frá maí til september. Nánari upplýsingar um starfið má finna hér.

    Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar 2024.
  • Byggðasafn Skagfirðinga auglýsir eftir sumarstarfsfólki í starf safnvarða í 100% starfshlutfalli. Starf safnvarðar felst í að taka á móti gestum og segja þeim sögu húsa, staðar og sýninga á safnasvæðinu í Glaumbæ. Í starfinu felst einnig muna- og staðarvarsla, söluuppgjör og þrif. Tímabil ráðningar er samkomulagsatriði en um er að ræða tímabilið frá maí út september.  Nánari upplýsingar um starfið má finna hér.

    Umsóknarfrestur er til og með 4. mars 2024.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóri, berglind@skagafjordur.is, 453-6173. Upplýsingar um laun veitir launadeild sveitarfélagsins: launadeild@skagafjordur.is. Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Með umsókn skal fylgja upplýsingar um menntun og fyrri störf. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Fréttin hefur verið uppfærð.