Fara í efni

Fornbíl rennt úr hlaði


Frá vinstri: Berglind Þorsteinsdóttir, verkefnisstjóri pökkunar, dr. Guðný Zoëga, deildarstjóri fornleifadeildar BSk. og Björn Sverrisson, fv. eldvarnaeftirlitsmaður á Sauðárkróki og eigandi fornbifreiðarinnar. Myndir/PIP.

Á föstudaginn var sótti Björn Sverrisson Ford A bifreið sína, árgerð 1930, sem hefur verið til sýnis í Minjahúsinu um árabil. Honum var færður blómvöndur og þakkir fyrir lánið á glæsibifreiðinni og gott samstarf í gegnum árin.

Björn fékk bílinn suður á Álftanesi á sínum tíma, þá allan sundurtekinn og fór mikil vinna í að gera hann upp. Hann sagðist hafa lagt sig fram við að gera bílinn upp eins mikið „orginal“ og mögulegt væri í viðtali við Feyki árið 1990, og að ekkert vandamál hafi verið að fá varahluti. „Ég fékk pöntunarlista hjá Fordverksmiðjunum og hægt er panta eftir honum alla hluti. Þeir sérsmíða allt í Bandaríkjunum og ég fékk meira að segja áklæðið á sætin alveg eins og það var. Það má segja að bíllinn sé alveg eins og þegar hann kom frá verksmiðjunum í upphafi,“ sagði Björn í viðtalinu. Glæsibifreiðin fer aftur á verkstæði Björns eftir að hafa skreytt torgið við gömlu verkstæðin í Minjahúsinu undanfarin ár. Þau verða tekin niður þegar flutt verður á milli húsa. Öllum safngripum Byggðasafnsins í Minjahúsinu verður pakkað og þeir undirbúnir fyrir flutning. Eins og áður hefur verið greint frá þá var gerður samningur við Kaupfélag Skagfirðinga um makaskipti á Minjahúsinu við Aðalgötu 16b og Aðalgötu 21-21a, þ.e. Gamla samlaginu að fyrrverandi Iðju meðtalinni og Gránu, með það í huga að nota húsnæðið undir starfsemi Byggðasafns Skagfirðinga.

Um leið og Björn ók bílnum á brott fór annar af tveimur glæsilegum lánsgripum sem safnið hafði haft í láni og sett mikinn svip á sýningarnar í Minjahúsinu. Fyrir mánuði fór annar björn úr húsi þegar starfsmenn Náttúrfræðistofnunar Íslands sóttu hvítabjörninn sem safnið hafði haft í láni frá þeim.