Fara í efni

Áframhaldandi styrkur til NORA samstarfsverkefnis

Samstarfsverkefni Byggðasafn Skagfirðinga, Lofotr Viking Museum í Noregi, Kujataa World Heritage í Grænlandi og Kyle and Lochalsh Community Trust í Skotlandi, "Viking Networks & Young Adults", hlaut á dögunum um 9,3 milljón króna styrk (450.000 DKK) frá NORA (Nordic Atlantic Cooperation). Eins og sjá má í frétt á heimasíðu NORA.
 
Um er að ræða verkefni til þriggja ára og er þetta annað árið sem verkefnið hlýtur styrk. Verkefnið byggir á sameiginlegri arfleifð landanna fjögurra, sögu umræddra svæða og minja frá 11. öld. Sameiginlegt markmið safnanna er að finna lausnir við þeim áskorunum sem felast í sjálfbærri ferðamennsku og eflingu afskekktra svæða og byggða.
 
Við erum afar þakklát fyrir styrkinn og hlökkum til áframhaldandi samstarfs!