Þann 19. júní síðastliðinn hélt Fornverkaskólinn uppskeruhátíð og opinn dag á Tyrfingsstöðum á Kjálka í Skagafirði þar sem stórum tímamótum í sögu skólans var fagnað. Gestum bauðst að skoða húsin, fræðast um verkefnið og taka þátt í að tyrfa yfir síðasta húsið.
Fornverkaskólinn hafði ýmsar ástæður til að gleðjast í ár en hann fagnar 20 ára starfsafmæli um þessar mundir. Einnig eru 20 ár síðan Fornverkaskólinn og landeigendur á Tyrfingsstöðum gerðu með sér samning um endurbyggingu torfhúsanna á staðnum. Á námskeiðum í sumar lauk endurbyggingu síðasta hússins á Tyrfingsstöðum og á opnum degi var gestum og gangandi boðið að tyrfa yfir húsið og reka þannig smiðshöggið á verkið með okkur.
Virtustu menningarminjaverðlaun Evrópu
Í vor hlotnaðist Fornverkaskólanum Evrópsku menningarminjaverðlaunin / Europa Nostra verðlaunin 2026, sem eru virtustu menningarminjaverðlaun Evrópu, og því ærin ástæða til að kætast á hátíðinni. Verðlaunin eru veitt af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og Europa Nostra með stuðningi úr Menningaráætlun ESB. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn sem fór fram 28. maí sl. í Nikosíu á Kýpur og hélt föruneyti Fornverkaskólans til Kýpur til að veita verðlaununum viðtöku.
Tímamótum fagnað og 20 ára samstarf heiðrað
Dagskrá opna dagsins hófst á nokkrum ávörpum; Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga opnaði hátíðina, Sigríður Sigurðardóttir, fyrrv. safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga og stofnandi Fornverkaskólans sagði frá tilurð verkefnisins og gildi menningarminjaverðlaunanna.
Rúnar Leifsson, forstöðumaður Minjastofnunar Íslands, lagði áherslu á að þekking á torfhleðslu væri ekki aðeins bundin við húsin sjálf heldur lifði hún fyrst og fremst í höndum og huga þeirra sem kunna handverkið:
"Í þessu samhengi gegnir Fornverkaskólinn lykilhlutverki. Skólinn hefur þegar sannað gildi sitt á alþjóðlegum vettvangi – árlega sækja þátttakendur víðs vegar að úr heiminum. Það er því augljóst að starfsemin er ekki aðeins mikilvæg fyrir Ísland heldur hefur hún alþjóðlegt mikilvægi."
Einnig tóku til máls sendiherra Evrópusambandsins, Clara Ganslandt og fulltrúi Europa Nostra á Íslandi Páll V. Bjarnason, arkitekt. Bæði voru þau viðstödd til að undirstrika mikilvægi grasrótarstarfs líkt og starf Fornverkaskólans og minna á mikilvægi viðurkenningarinnar.

Að ávörpum loknum var viðurkenningarskjöldur Europa Nostra-verðlaunanna afhjúpaður, en honum verður fundinn staður hjá Byggðasafni Skagfirðinga.
Sem þakklætisvott fyrir ómetanlegt samstarf síðustu 20 ára var Kristínu Jóhannsdóttur og Sigurði Marz Björnssyni á Tyrfingsstöðum einnig færð blóm og nýtt skilti á framhúsið. Skiltið gerði Snædís Traustadóttir húsasmíðameistari og er það nákvæm endurgerð af eldra skilti sem áður prýddi bæinn en hvarf fyrir mörgum árum.

Lifandi handverk og létt stemning
Létt var yfir mannskapnum á Tyrfingsstöðum, en áætlað er að um 100 manns hafi tekið þátt í deginum og fagnað tímamótunum. Starfsfólk safnsins aðstoðaði og spjallaði við gesti á meðan starfsfólk Fornverks, með Helga Sigurðsson í broddi fylkingar, sá um að tyrfa yfir nýendurbyggða hesthúsið með góðri aðstoð nokkurra sjálfboðaliða úr hópi gesta hátíðarinnar.

Boðið var upp á léttar veitingar frá veitingaþjónustunni Austan Vatna og lifandi tónlist, en það var Heimir Sigurpáll Árnason frá Sveinungsvík sem skemmti gestum með harmónikkuleik. Þá kveikti Kristín upp í eldavélinni í gamla bænum og steikti lummur, svo að lummuilmurinn tók á móti öllum þeim sem gengu um gömlu híbýlin. Meðlimir Pilsaþyts settu fallegan svip á hátíðina með því að klæðast íslenskum búningum.

Við þökkum öllum fyrir samveruna og skemmtilegan opinn dag á Tyrfingsstöðum! Þá viljum við þakka sérstaklega þeim sem komu að undirbúningi og skipulagi hátíðarinnar.
