Fara í efni

Umgengnisreglur á safnsvæðinu

Það gilda sex megin reglur sem við biðjum alla leiðsögumenn um að miðla til gesta sem heimsækja safnið á þeirra vegum:

  • Stranglega bannað að reykja: Hús safnsins eru úr timbri og torfi og mjög eldfim. Mikil eldhætta getur skapast af glóð í sígarettustubbum.
  • Bakpokar eru ekki leyfðir: Fólki hættir til að reka bakpoka og stærri töskur utan í safngripi og veggi húsanna.
  • Bannað að snerta gripi í sýningum safnsins: Gripirnir eru flestir upprunalegir og því gamlir og viðkvæmir og geta skemmst sé hreyft við þeim.
  • Bannað að nota flass við myndatökur: Flass getur skemmt viðkvæma gripi til lengri tíma og hefur truflandi áhrif á upplifun annarra gesta.
  • Ekki er leyfilegt að ganga á þökum torfhúsanna eða á garðlaginu umhverfis safnsvæðið: Húsin og garðlagið skemmast ef gengið er á þeim. Hætta er á að þökin gefi sig undir fólki sem getur skapað hættu bæði þeim sem eru á þakinu og þeim sem eru inni í húsinu. Þá er hætta á að fólk detti og slasi sig.
  • Leyfi þarf fyrir drónaflugi: Drónar geta valdið slysum á fólki eða skemmdum á húsum missi fólk stjórn á þeim. Þá geta þeir truflað upplifun annarra gesta safnsins. Því viljum við að drónum sé aðeins flogið undir eftirliti starfsfólks.

Takk fyrir að hjálpa okkur að tryggja öryggi og góða upplifun allra gesta!

Upplýsingaskjal til prentunar.