
Á árinu 2026 bjóðum við upp á sérstakt tilboð þar sem hægt er að heimsækja safnið í Glaumbæ og eina af sundlaugum Skagafjarðar. Athugið að miðinn gildir aðeins fyrir samdægurs heimsókn. Hægt er að kaupa miðana í Glaumbæ eða í sundlaugum sveitarfélagsins í Varmahlíð, á Sauðárkróki eða Hofsósi.
Miðar
- 3.000 Kr. – Fullorðinn
- 2.000 Kr. – Afsláttarkjör (Hópar (6+), námsmenn, eldri borgarar og öryrkjar)
- 400 Kr. – Börn (7-17 ára)
- Frítt – Börn (0-6 ára)
Sundlaugar í Skagafirði
Fjölbreytt úrval sundlauga er í Skagafirði en sveitarfélagið rekur sundlaugar á Sauðárkróki, Hofsósi og Varmahlíð.
Heitu pottarnir í Sundlaug Sauðárkróks eru með þeim bestu, útsýnið frá sundlauginni á Hofsósi er stórkostlegt og sundlaugin og rennibrautirnar í Varmahlíð eru afar barnvænar.
Upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma sundlauganna má finna hér.
