Fara í efni

Fornverkaskólinn tók við Europa Nostra-verðlaunum á Kýpur | The Heritage Craft School receives Europa Nostra Award in Cyprus

Stoltur og glaður hópurinn með viðurkenningarskjöld Evrópsku menningarminjaverðlaunanna. Frá vinstri…
Stoltur og glaður hópurinn með viðurkenningarskjöld Evrópsku menningarminjaverðlaunanna. Frá vinstri: Sigríður Sigurðardóttir, fyrrum safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga og stofnandi Fornverkaskólans og Inga Katrín D. Magnúsdóttir, verkefnastjóri Fornverkaskólans, Berglind Þorsteinsdóttir safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga og Helgi Sigurðsson hleðslumeistari og kennari Fornverkaskólans.

Föruneyti Fornverkaskólans hélt fyrir skemmstu til Kýpur til að taka á móti Evrópsku menningarminjaverðlaununum / Europa Nostra-verðlaununum, virtustu menningararfsverðlaunum Evrópu. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn þann 28. maí sl. í bæjarleikhúsi Nikósíu á Kýpur. Fornverkaskólinn var í hópi 30 sigurvegara sem hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningararfsverkefni í Evrópu. Samkvæmt Europa Nostra sóttu um 500 sérfræðingar, sjálfboðaliðar, áhugafólk og stuðningsaðilar verðlaunaafhendinguna.

Verðlaunaafhendingin fór fram á European Cultural Heritage Summit, árlegum leiðtogafundi á sviði menningararfs í Evrópu, sem skipulagður er af Europa Nostra. Fundurinn fór fram í Nikósíu dagana 26.–30. maí undir yfirskriftinni Heritage as the Soul of Mare Nostrum.

Fornverkaskólinn hlaut verðlaun í flokknum Fræðsla, þjálfun og færni. Í umsögn dómnefndar segir:

„Verkefnið tekst á við hnignun þekkingar á hefðbundnu byggingarhandverki í Evrópu með því að miðla því áfram á lifandi og áþreifanlegan hátt. Það byggir á öflugu kennslulíkani um flutning þekkingar á milli kynslóða sem tryggir bæði varðveislu húsanna sjálfra og þeirrar þekkingar sem þarf til að halda þeim við. Verkefnið stendur á traustum grunni vandaðs handverks og nýtur stuðnings af alþjóðlegu og fræðilegu samstarfi, og er góð fyrirmynd fyrir varðveislu torfhúsaarfsins.“

Helgi Sigurðsson, hleðslumeistari og kennari Fornverkaskólans, tók á móti verðlaununum fyrir hönd verkefnisins.

Hluti af dagskránni var svokallaður European Heritage Excellence Day, eða Dagur framúrskarandi verkefna, þar sem sigurvegarar ársins kynntu verkefni sín og deildu reynslu sinni. Um 400 þátttakendur sóttu viðburðinn, þar á meðal sérfræðingar, rannsakendur, sjálfboðaliðar og aðrir fulltrúar menningararfsstarfs víðs vegar að úr Evrópu. Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga, flutti kynningu á Fornverkaskólanum og vakti íslenskur torfbyggingararfur mikla forvitni og áhuga viðstaddra.

„Eftir langt og strangt umsóknarferli og mikla vinnu í aðdraganda verðlaunanna var einstaklega ánægjulegt að sjá að Fornverkaskólinn átti fullt erindi á meðal framúrskarandi verkefna frá gjörvallri Evrópu. Þar var hann í hópi fjölbreyttra og stórmerkilegra verðlaunaverkefna sem eiga það sameiginlegt að vera knúin áfram af fagmennsku og eldmóði þeirra sem að þeim standa,“ sagði Berglind eftir heimkomuna frá Kýpur.

Auk Berglindar og Helga voru viðstaddar Hrund Pétursdóttir eiginkona hans, þær Sigríður Sigurðardóttir, fyrrum safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga og stofnandi Fornverkaskólans og Inga Katrín D. Magnúsdóttir, verkefnastjóri Fornverkaskólans.

Fornverkaskólinn er starfræktur af Byggðasafni Skagfirðinga. Hann var stofnaður árið 2006 til að varðveita og miðla hefðbundnum íslenskum byggingaraðferðum, einkum torfhleðslu. Frá árinu 2007 hafa tugir námskeiða verið haldin og rúmlega 500 þátttakendur tekið þátt í námskeiðunum. Kennslan hefur að stórum hluta farið fram á Tyrfingsstöðum í Skagafirði, þar sem torfhúsin sjálf eru lifandi kennslustofa.

Hátíð á Tyrfingsstöðum 19. júní - takið daginn frá!

„Þann 19. júní ætlum við að gleðjast saman og halda opinn dag og uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum á Kjálka. Í ár höfum við ýmsar ástæður til að fagna! Við ætlum að gleðjast yfir verðlaununum og afhjúpa viðurkenningarskjöld sem Europa Nostra-samtökin veittu Fornverkaskólanum,“ segir Berglind og bætir við að í ár séu einnig liðin 20 ár frá því að Fornverkaskólinn og landeigendur á Tyrfingsstöðum gerðu með sér samning um endurbyggingu torfhúsanna á staðnum.

„Á námskeiðum í sumar er stefnt að því að ljúka endurbyggingu síðasta hússins, en á opnum degi bjóðum við öll velkomin að aðstoða okkur við að reka smiðshöggið á verkið, tyrfa yfir húsið og fagna áfanganum með okkur.“

Viðburðurinn er öllum opinn, hvort sem fólk vill veita hjálparhönd, rabba við okkur og fræðast um torf eða skoða húsin. Kaffi, drykkjarföng og léttar veitingar verða í boði, stefnt er að því að lifandi tónlist létti okkur lundina og að félagar í Pilsaþyt heiðri okkur með nærveru sinni.

„Við hvetjum öll til að taka daginn frá og fagna með okkur þessum stóru tímamótum Fornverkaskólans. Verið velkomin á opinn dag á Tyrfingsstöðum!“

Stefnt er að því að hefja dagskrá kl. 14. Áhugasömum er bent á að skrá sig á Facebook-viðburðinn „Opinn dagur og uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum!“ Þar verður hægt að nálgast nánari upplýsingar þegar nær dregur.

/English:

A delegation from the Heritage Craft School travelled to Cyprus to receive the European Heritage Awards / Europa Nostra Awards, regarded as Europe’s most prestigious recognition in the field of cultural heritage. The awards were presented at a ceremony on 28 May at the Nicosia Municipal Theatre in Cyprus. The Heritage Craft School was among 30 winners recognised for outstanding heritage achievements in Europe. According to Europa Nostra, around 500 heritage professionals, volunteers, enthusiasts and supporters attended the awards ceremony.

The awards ceremony took place during the European Cultural Heritage Summit, an annual summit in the field of cultural heritage in Europe, organised by Europa Nostra. The Summit was held in Nicosia from 26 to 30 May under the title Heritage as the Soul of Mare Nostrum.

The Heritage Craft School received the award in the category Education, Training and Skills. In its statement, the Awards’ Jury remarked:

This project addresses the decline of traditional building skills in Europe through sustained, hands-on transmission of knowledge and practice. It presents a strong intergenerational teaching model that safeguards both the physical structures and the knowledge required to sustain them. Rooted in authenticity and high craftsmanship, and strengthened through international and academic collaboration, the initiative offers a credible model for the preservation of turf-building heritage.

Helgi Sigurðsson, master turf builder and teacher at the Heritage Craft School, accepted the award on behalf of the programme.

The programme also included the European Heritage Excellence Day, where this year’s winners presented their projects and shared their experiences. Around 400 participants attended the event, including experts, researchers, volunteers and other representatives of heritage work from across Europe. Berglind Þorsteinsdóttir, Director of Skagafjörður Heritage Museum, gave a presentation on the Heritage Craft School, and Iceland’s turf-building heritage sparked great curiosity and interest among those present.

“After a long and demanding application process, and a great deal of work leading up to the awards, it was extremely rewarding to see that the Heritage Craft School truly belonged among outstanding projects from across Europe. It stood alongside a diverse group of remarkable award-winning projects, all of which have in common that they are driven forward by the professionalism and passion of the people behind them,” said Berglind after returning from Cyprus.

In addition to Berglind and Helgi, his wife Hrund Pétursdóttir, Sigríður Sigurðardóttir, former Director of Skagafjörður Heritage Museum and founder of the Heritage Craft School, and Inga Katrín D. Magnúsdóttir, Project Manager of the Heritage Craft School, were also present.

The Heritage Craft School was established in 2006 by Skagafjörður Heritage Museum to preserve and pass on traditional Icelandic building methods, especially turf construction. Since 2007, dozens of courses have been held, with around 500 participants from Iceland and abroad taking part in the school’s programme. Much of the teaching takes place at Tyrfingsstaðir in Skagafjörður, where the turf buildings themselves serve as a living classroom.

Celebration at Tyrfingsstaðir on 19 June – save the date!

“On 19 June, we will come together to celebrate with an open day and celebration at Tyrfingsstaðir in Kjálki. This year, we have many reasons to celebrate! We will celebrate the award and unveil the commemorative plaque presented to the Heritage Craft School by Europa Nostra,” says Berglind, adding that this year also marks 20 years since the Heritage Craft School and the owners of Tyrfingsstaðir farm signed an agreement on the reconstruction of the turf buildings on the site.

“This summer, the aim is to complete the reconstruction of the final building during the courses, and during the open day we invite everyone to join us in putting the finishing touches to the work, covering the building with turf and celebrating this milestone with us.”

The event is open to everyone, whether people would like to lend a hand, have a chat and learn about turf, or simply visit the buildings. Coffee, drinks and light refreshments will be offered, live music is planned to help set the atmosphere , and members of Pilsaþytur national costume club will honour us with their presence.

“We encourage everyone to save the date and celebrate these major milestones for the Heritage Craft School with us. Welcome to the open day at Tyrfingsstaðir!”

The programme is scheduled to begin at 14:00. Those interested are encouraged to sign up for the Facebook event, “Open Day and Harvest Festival at Tyrfingsstaðir” Further information will be available there closer to the date.