Fara í efni

Viðburðarík vika hjá Byggðasafni Skagfirðinga

Halldór Júlíusson færir safninu útskorin kistil að gjöf.
Halldór Júlíusson færir safninu útskorin kistil að gjöf.

Það var nóg um að vera hjá Byggðasafni Skagfirðinga í liðinni viku en þrír fjölbreyttir viðburðir fóru fram á vegum safnsins dagana 8.–13. ágúst. Handverk, menningararfur og nýjar nálganir á gamlar hefðir voru meðal þess sem bar á góma.

Tálgað, skorið og ofið

Dagana 8.–9. ágúst stóðu Byggðasafn Skagfirðinga, Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna og Heimilisiðnaðarsafnið fyrir tveggja daga námskeiði í bandvefnaði.

Sænska handverkskonan Kerstin Neumüller leiddi námskeiðið og kenndi þátttakendum bæði að tálga og skera út eigin bandgrind og undirstöðuatriði bandvefnaðar. Fyrri dagurinn fór í gerð bandgrindanna en þann síðari fengu þátttakendur að spreyta sig á að vefa á grindurnar sem þeir höfðu sjálfir útbúið.

Námskeiðið var vel sótt og heppnaðist afar vel. Það var styrkt af Safnasjóði og færa söfnin Safnasjóði kærar þakkir fyrir veittan stuðning.

Bólu-Hjálmar tréskeri

Halldór Júlíusson, tréskeri og áhugamaður um tréskurð Bólu-Hjálmars, flutti þann 10. ágúst erindi á safninu um Hjálmar Jónsson (1796–1875), Bólu-Hjálmar, og tréskurð hans.

Bólu-Hjálmar er fyrst og fremst þekktur fyrir kveðskap sinn en var jafnframt afkastamikill tréskeri. Halldór varpaði í erindinu ljósi á þessa hlið Hjálmars, verk hans og vinnubrögð og fjallaði meðal annars um höfðaletur hans sem er um margt einstakt.

Að erindinu loknu færði Halldór safninu að gjöf fallegan kistil, skreyttan með höfðaletri, ásamt lausum höfðaletursstöfum. Gjöfin mun nýtast í fræðslustarfi safnsins og gefa gestum tækifæri til að kynnast höfðaletri og gamalli handverkshefð með lifandi hætti.

Hinsegin þjóðbúningar

Í tilefni af Hinsegin hátíð Skagafjarðar var einnig boðið upp á erindið „Hinsegin þjóðbúningar: Sköpun, saga og framtíð“ þann 13. ágúst.

Anna Karen Unnsteins, þjóðfræðingur sem hefur rannsakað íslenska þjóðbúninga og hefðir tengdar þeim, flutti erindið. Hán fjallaði um sögu íslenskra þjóðbúninga, þróun þeirra og hvernig kynbundnar hugmyndir hafa haft áhrif á gerð þeirra og notkun. Einnig sagði hán frá Fredy Clue, sænskum listamanni sem hefur skapað kynlausan þjóðbúning og með því ögrað hefðbundnum hugmyndum um þjóðbúninga og opnað fyrir nýja sýn á menningararf.

Að erindinu loknu færði hópurinn sig yfir í Áshús þar sem hýr hamingjustund tók við með veitingum að hætti hússins og áframhaldandi spjalli um þjóðbúninga, hefðir og nýjar leiðir.

Byggðasafn Skagfirðinga þakkar öllum þeim sem komu að viðburðum vikunnar, fluttu erindi, miðluðu þekkingu sinni og tóku þátt. Ekki síður þökkum við öllum gestunum sem mættu og tóku þátt í þessari viðburðarríku viku með okkur.