Fara í efni

Velkomin á opinn dag og uppskeruhátíð!

Þann 19. júní ætlum við að gleðjast saman og halda opinn dag og uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum á Kjálka. Í ár höfum við ýmsar ástæður til að fagna; Fornverkaskólanum hlotnaðist nýverið viðurkenning frá Europa Nostra, sem eru ein virtustu minjaverndarverðlaun í Evrópu. Verðlaunahátíðin fór fram 28. maí í Nikosíu á Kýpur og á opnum degi ætlum við að fagna áfanganum með vinum og vandamönnum og afhjúpa viðurkenningarskjöld sem Europa Nostra samtökin veittu Fornverkaskólanum.
 
Í ár eru einnig að verða 20 ár síðan Fornverkaskólinn og landeigendur á Tyrfingsstöðum gerðu með sér samning um endurbyggingu torfhúsanna á staðnum. Á námskeiðum í sumar var endurbyggingu síðasta hússins lokið, en á opnum degi bjóðum við öll velkomin að aðstoða okkur við að reka smiðshöggið á verkið, tyrfa yfir húsið og fagna áfanganum með okkur.
 
Viðburðurinn er öllum opinn, hvort sem er til að veita hjálparhönd, rabba við okkur og fræðast um torf eða til að skoða húsin. Boðið verður upp á harmónikuleik, léttar veitingar, spjall og hátíðlega stemningu. Meðlimir Pilsaþyts heiðra okkur með nærveru sinni í íslenskum þjóðbúningum og setja fallegan svip á daginn.
 
Dagskrá
 

Kl. 14:00

  • Setning og ávörp. Til máls taka:
    • Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga
    • Sigríður Sigurðardóttir, fyrrv. safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga og stofnandi Fornverkaskólans
    • Rúnar Leifsson, forstöðumaður Minjastofnunar Íslands
    • Clara Ganslandt, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi
    • Páll V. Bjarnason, arkitekt og opinber fulltrúi Europa Nostra
  • Afhjúpun viðurkenningarskjaldar vegna Evrópsku menningararfsverðlaunanna / Europa Nostra-verðlaunanna 2026.

Kl. 14:30

  • Gestum boðið að taka þátt og fræðast um hefðbundnar aðferðir við torfhleðslu og handverk.
  • Hafist verður handa við að tyrfa síðasta þakið á Tyrfingsstöðum.
Verið öll velkomin á opinn dag á Tyrfingsstöðum!