Síðasta vikan í júlí markaði þriðju og síðustu vikuna í uppgrefti í Höfnum í ár og jafnframt lok uppgraftarins sem staðið hefur yfir síðan árið 2023.
Veðrið fór heldur mildari höndum um fornleifafræðingana þessa síðustu viku en vikurnar á undan og skilyrðin því góð til að ljúka uppgrefti á elstu mannvistarlögunum. Margt spennandi hefur komið í ljós í sumar; nýjar byggingar, gripir og mikið af beinum, m.a. unnin hvalbein líkt og fyrri ár. Grafið var niður fyrir gjóskulagið úr Heklu frá 1104 og ljóst að fólk hefur verið farið að athafna sig á Hafnabúðum a.m.k. á 11. öld. Við teljum þó að elstu minjar á svæðinu séu nú þegar farnar í sjóinn.
Á þessum fjórum árum hefur rannsóknin gefið okkur miklar upplýsingar um verbúðirnar og þær breytingar sem urðu á staðnum í gegnum aldirnar. Þótt sjálfum uppgreftinum sé nú lokið er áframhaldandi úrvinnsla framundan á þeim gögnum, sýnum og gripum sem safnast hafa. Áherslan í verkefninu hefur hingað til verið á vettangsrannsóknina og er því mikið verk að vinna í úrvinnslu og greiningum. Það er því nóg eftir og ljóst að niðurstöður úr rannsókninni munu halda áfram að líta dagsins ljós á næstu mánuðum og árum, og skýrslur uppgraftaráranna verða jafnframt birtar á heimasíðu Byggðasafns Skagfirðinga þegar þær eru tilbúnar.
Rannsóknin hefur notið góðs af öflugu samstarfi við sérfræðinga á ýmsum sviðum en hún er samstarfsverkefni Byggðasafns Skagfirðinga, Minjastofnun Íslands, Arkeologisk museum, Universitetet i Stavanger, Háskóli Íslands á Hólum og UMass Boston, háskóla í Bandaríkjunum.
Við erum ótrúlega þakklát fyrir okkar frábæra rannsóknarteymi, alla þá góðu samstarfsaðila sem komið hafa að verkefninu undanfarin ár, áhugasama og stuðningsríka landeigendur og frábært nærsamfélag. Við kveðjum Hafnir í bili en eigum án efa eftir að segja betur frá því sem þar hefur komið í ljós.