Fara í efni

Tjörgunarnámskeið á Hólum

Timburþil Víðimýrarkirkju er tjörguð.
Timburþil Víðimýrarkirkju er tjörguð.

Dagana 8.-12. september næstkomandi verður haldið tjörgunarnámskeið á Hólum í Hjaltadal í Skagafirði. Hópur handverksmanna frá Noregi er á leið til landsins til að leiðbeina og taka þátt í námskeiðinu, en viðfangsefni námskeiðsins verður að tjarga Auðunarstofu á Hólum. Kennari á námskeiðinu er Tor Meusburger, sem hefur tjargað allnokkrar stafakirkjur í Noregi.

Námskeiðið verður að mestu verklegt, en einnig verða kynningar á nauðsynlegum verkþáttum. Farið verður yfir verkferla tjörgunar timburhúsa, undirbúning, útbúnað og umbúnað við tjörgun, aðferðir og öryggisatriði.

Þann 10. september verður haldið opið málþing, kl. 18-20. Á málþinginu verður rætt um handverk, tjörgun, óáþreifanlegan menningararf og ýmislegt fleira. Málþingið verður öllum opið og við hvetjum áhugasöm að koma og vera með. Nánari dagskrá málþingsins verður auglýst síðar.

Námskeiðið er samstarfsverkefni Vígslubiskupsembættisins á Hólum í Hjaltadal, Norsk håndverksinstitutt (The Norwegian Crafts Institute), Fortidsminneforeninger (The National Trust of Norway), Martinussen Tradition and Competence AS og Fornverkaskólans.

Nánari upplýsingar má sjá hér