Verkefnið Sunnudagar á safni, sem er hluti af samstarfi safna hjá SSNV, heldur áfram sunnudaginn 15. mars, en þá færist dagskráin í Skagafjörð. Markmið verkefnisins er að efla samstarf safna, setra og sýninga á Norðurlandi vestra og bjóða íbúum og gestum upp á sérstaka menningarupplifun yfir vetrartímann, þegar margir þessara staða eru annars lokaðir.
Opið verður hjá Byggðasafni Skagfirðinga í Glaumbæ í tilefni dagsins kl. 14–17. Almennur aðgangseyrir er 2.200 kr. og 1.900 kr. fyrir hópa (6+), námsmenn, eldri borgara og öryrkja. Frítt er fyrir börn yngri en 18 ára.
Fjölskyldur eru hvattar til að koma á safnið og hafa gaman saman. Hægt verður að spreyta sig á bingóspjaldi safnsins en verðlaun eru í boði fyrir eina röð eða heilt spjald!
Þá kynnum við nýjungina „Safn og sund“ – einn miði sem gildir í heimsókn í Glaumbæ og í eina af sundlaugum Skagafjarðar. Verðið er 3.000 kr. fyrir fullorðna, 2.000 kr. fyrir hópa (6+), námsmenn, eldri borgara og öryrkja, 400 kr. fyrir börn (7–17 ára) og frítt fyrir börn (0–6 ára).