Minnum á að enn er opið fyrir athugasemdir vegna gerð nýs deiliskipulags fyrir Byggðasafn Skagfirðinga í Glaumbæ.
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 45. fundi sínum þann 21. janúar 2026 að auglýsa skipulagslýsingu fyrir "Byggðasafn Skagfirðinga í Glaumbæ" skv. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Lýsingin gerir grein fyrir fyrirhugaðri vinnu við gerð deiliskipulagsins og í henni koma fram áherslur Byggðasafns Skagfirðinga, Glaumbæjarkirkju og Þjóðminjasafns Íslands. Í lýsingunni eru einnig upplýsingar um forsendur og fyrirhugað skipulagsferli samkvæmt fyrrnefndum skipulagslögum.
Helsta markmið deiliskipulagsins er að bæta aðgengi og móttöku ferðamanna og gesta sem sækja heim Byggðasafn Skagfirðinga og Glaumbæjarkirkju. Skipulaginu er ætlað að skapa ramma um jákvæða og skynsamlega uppbyggingu til lengri tíma. Lögð verður áhersla á að mannvirki hafi samræmda heildarásýnd sem falli vel að sérkennum umhverfisins og núverandi byggðar.
- Skoða má skipulagslýsinguna hér.
- Frekari upplýsingar um hvernig senda má inn ábendingar má finna hér.
Skipulagslýsingin er auglýst frá 28. janúar til og með 26. febrúar 2026.