Fróðlegt kynningarmyndband um væntanlegt menningarhús á Sauðárkróki sem frumsýnt var á setningarathöfn Sæluviku Skagfirðinga.
Berglind Þorsteinsdóttir, forstöðumaður Byggðasafns Skagfirðinga, Kristín Sigurrós Einarsdóttir, héraðsbókavörður Héraðsbókasafns Skagfirðinga, Sólborg Una Pálsdóttir, héraðsskjalavörður Héraðsskjalasafns Skagfirðinga og Saga Sjöfn Ragnarsdóttir, formaður Leikfélags Sauðárkróks segja frá því hvaða þýðingu nýtt menningarhús hefur fyrir viðkomandi stofnanir og félög og hvaða tækifæri felast í þessari nýju menningarmiðstöð. Þá má einnig sjá skot sem sýna hönnun hússins, bæði utan frá og innan.

Myndbandið er unnið af Berglindi Þorsteinsdóttur og Ylfu Leifsdóttur hjá Byggðasafni Skagfirðinga í samstarfi við Arkís arkitektastofu.