Fara í efni

Hryllilega gaman á Hrekkjavöku

Á laugardaginn lagði um 200 manns leið sína í Glaumbæ þar sem hrekkjavakan var haldin með pompi og prakt! 
 
Gamli bærinn hafði fengið á sig skuggalega mynd og draugalegar verur leyndust í hverju horni. Í baðstofunni lifnuðu skagfirskar draugasögur við með skuggalísum, í Áshúsi var boðið upp á hryllilega bragðgóðar veitingar og í Áshúskjallara fengu gestir að gefa skelfilegri sköpunargleði lausan tauminn! 🕸️
 
Og ekki lét næturhimininn sitt eftir liggja heldur sveipaði Glaumbæ dulúð með dansandi norðurljósum! 
 
Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna og vonum að þið hafið skemmt ykkur konunglega!