Fara í efni

Hrekkjavaka í Glaumbæ!

Það er eitthvað skuggalegt í vændum í Skagafirði laugardaginn 31. október! 
 
Kíkið í grikk og gott á Sauðárkróki kl. 17-19 og svo í Glaumbæ kl. 19–21 til að upplifa hrekkjavökustemningu og heyra íslenskar draugasögur!
 
  • Sýningarnar í gamla bænum taka á sig skuggalega mynd og Miklabæjar-Sólveig og fleiri fara á stjá…
  • Í baðstofunni verða draugasögur og fróðleikur um gömul hindurvitni og uppruna hrekkjavökunnar
  • Í Áshúsi verður vinnustofa fyrir yngri kynslóðina þar sem hægt verður að skera út grasker og rófur og einnig verður mögulegt að kaupa léttar veitingar. 
Börn 12 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum og það gæti verið betra fyrir viðkvæmar sálir á öllum aldri að hafa fylgdarfólk sér til halds og trausts.
 
Ókeypis aðgangur fyrir börn undir 18 ára og fullorðna í búningum!
 
Munið eftir ársmiðunum!