Fara í efni

Gleði og gaman á Atvinnulífssýningu Skagafjarðar

Við áttum skemmtilega helgi á Atvinnulífssýningu Skagafjarðar sem fram fór í íþróttahúsinu á Sauðárkróki um helgina!
 
Söfnin í Skagafirði tóku höndum saman á sýningunni og voru Byggðasafn Skagfirðinga, Héraðsskjalasafn Skagfirðinga, Listasafn Skagfirðinga og Héraðsbókasafn Skagfirðinga saman með bás þar sem gestir gátu kynnt sér fjölbreytta starfsemi safnanna.
 
Við hjá Byggðasafninu tókum að sjálfsögðu nokkra safngripi með okkur en ekki endilega þá auðþekkjanlegustu! Nokkrum „furðugripum“ úr safnkostinum var stillt upp í glerskáp og gátu gestir spreytt sig á að giska á hvað þeir væru og til hvers þeir hefðu verið notaðir. Það var gaman að sjá hversu mörg lögðu höfuðið í bleyti og tóku þátt í getrauninni!
 
Ferðaþjónusta í Skagafirði var einnig til umræðu á sýningunni, en Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga, tók þátt í pallborðsumræðunum “Eru ferðamenn vannýtt auðlind?”. Þar var meðal annars rætt um tækifæri til að laða fleiri ferðamenn til Skagafjarðar og efla ferðaþjónustu í héraðinu.
 
Við þökkum söfnunum kærlega fyrir góða samveru í básnum og öllum þeim fjölmörgu sem litu við hjá okkur um helgina. Sérstakar þakkir fá þau sem spreyttu sig á furðugripunum okkar og hamingjuóskir til Maríu sem bar sigur úr býtum í getrauninni!
 
Takk fyrir okkur!