Fara í efni

Fyrstu viðbrögð við vá

Starfsfólk Byggðasafns Skagfirðinga sóttu á dögunum námskeiðið „Björgun safnkosts – Fyrstu viðbrögð við vá“, þar sem farið var yfir hvernig bregðast skal við þegar safnkostur verður fyrir tjóni.
 
Á námskeiðinu fengu þátttakendur að takast á við sviðsett neyðarástand þar sem líkt var eftir afleiðingum jarðskjálfta. Vatnstjón hafði orðið, gripir fallið úr hillum og brotnað og þurfti því að meta aðstæður, forgangsraða verkefnum, skipuleggja björgunaraðgerðir og meðhöndla blauta, brotna og viðkvæma gripi. Þannig fengu þátttakendur að æfa réttu handtökin við björgun safnkosts við aðstæður sem líktust raunverulegri vá.
 
Starf safna snýst ekki aðeins um að varðveita menningararfinn frá degi til dags heldur líka um að vera undirbúin fyrir hið óvænta. Regluleg endurmenntun, æfing og þekking starfsfólks skiptir þar miklu máli, því þegar vá ber að höndum getur rétt viðbragð á réttum tíma skipt sköpum.
 
Nú hafa fimm starfsmenn safnsins sótt námskeið hjá Bláa skildinum. Með þessu byggjum við jafnt og þétt upp þekkingu og viðbúnað innan safnsins og erum betur í stakk búin til að bregðast við óvæntum aðstæðum og tryggja öryggi safnkostsins.
 
Við þökkum Blái skjöldurinn á Íslandi og Borgarsögusafn Reykjavíkur kærlega fyrir fróðlegt, gagnlegt og vel heppnað námskeið!