Fara í efni

15,6 milljónir úr fornminjasjóði!

Úthlutun úr fornminjasjóði 2026 liggur nú fyrir en 29 verkefni, af 83 sem sóttu um, fengu úthlutað úr sjóðnum, að heildarupphæð 93.700.000 kr. Byggðasafn Skagfirðinga hlaut alls 15.600.000 kr í styrk:
 
  • 7.000.000 kr - Verbúðalíf á Höfnum: Rannsókn á verbúðaminjum í hættu á Höfnum á Skaga 
  • 4.300.000 kr - Efnismenning og efnahagur á landnámsöld: Rannsókn á gripum og dýrabeinum frá Koti í Hegranesi í Skagafirði 
  • 4.300.000 kr - Heildarskráning fornleifa í Hjaltadal og Kolbeinsdal 
Við þökkum kærlega fyrir stuðninginn!
 
Yfirlit úthlutana úr fornminjasjóði 2024 má sjá hér.