Fara í efni

Forn mynt fannst í Höfnum á Skaga

Hafið er fjórða og síðasta ár fornleifauppgraftar á verbúðaminjum á Hafnabúðum á Skaga.

Verkefnið er samstarfsverkefni Byggðasafns Skagfirðinga, Minjastofnunar Íslands, Arkeologisk Museum Stavanger, Háskóla Íslands á Hólum og UMASS Boston háskóla í Bandaríkjunum. Í Höfnum var verstöð frá 11. öld fram á þá 18. Nú hyllir undir lok rannsóknar og stendur nú yfir rannsókn á elstu mannvistarleifunum sem eru frá fyrri hluta 12. aldar.

Á öðrum degi uppgraftar birti heldur betur til hjá fornleifafræðingunum, sem vinna nú við frekar erfiðar kringumstæður sökum veðurviðvarana, en upp úr krafsinu kom mynt sem talin er vera frá tíma Ólafs kyrra Noregskonungs (1067-1093). Myntin er sú fyrsta sem finnst við fornleifauppgröftinn í Höfnum og svo best sé vitað sú fyrsta sem finnst í verstöð frá þessum tíma hér á landi. Var skreiðin að gefa vel af sér?

Uppgröfturinn stendur fram að verslunarmannahelgi og verður hægt að fylgjast með framgangi hans m.a. á miðlum Byggðasafns Skagfirðinga.

                                                 Snædís Sunna fornleifafræðingur heldur á myntinni.