Laugardaginn sl. tók Byggðasafn Skagfirðinga þátt í Opnu vísindahúsi, á vegum Háskólalestarinnar, í Árskóla. Það var frábært að fá að taka þátt sem hluti af vísindasamfélaginu í Skagafirði og við þökkum kærlega fyrir okkur!
Þá var virkilega gaman hvað það voru mörg sem sýndu starfsemi safnsins áhuga og við þökkum öllum flottu krökkunum sem tóku þátt í uppgreftri og skordýragreiningu hjá okkur.