Fara í efni

Fjör á Mark Watson degi!

Í tilefni af afmæli enska aðalsmannsins Mark Watson (1906-1979) stóð safnið venju samkvæmt fyrir dagskrá í Glaumbæ þann 18. júlí.
 
Watson var mikill Íslandsvinur og eigum við honum margt að þakka, þar með talið rausnarleg peningagjöf til viðgerða á gamla torfbænum í Glaumbæ árið 1938 sem átti sinn þátt í að bærinn hefur varðveist. Watson hefur jafnframt verið titlaður bjargvættur íslenska fjárhundsins og er afmælisdagur hans "Dagur íslenska fjárhundsins".
 
Við viljum þakka öllum sem komu í heimsókn í gær í tilefni af afmæli Mark Watson og sérstakar þakkir til meðlima Pilsaþyts og Þjóðbúningafélags Íslands fyrir að kíkja við og Evelyn fyrir samstarfið!