Fara í efni

Farskóli FÍSOS

Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóri, tekur til máls á pallborðinu
Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóri, tekur til máls á pallborðinu "Inngilding og aðgengi reynslusögur".
Dagana 7.–9. október skellti starfsfólk safnsins sér á Farskóla safnamanna 2026 á Ísafirði ásamt um 150 öðrum þátttakendum hvaðanæva af landinu.
 
Á dagskrá farskólans voru fjölmörg áhugaverð erindi og málstofur ásamt skemmtilegum safnaheimsóknum. Á fimmtudagskvöldinu var svo haldin árshátíð safna og safnafólks með tilheyrandi gleði og glensi.
 
Það er alltaf dýrmætt að hittast, ræða málefni líðandi stundar og skiptast á reynslu og hugmyndum. Við komum heim full af innblæstri og með farteskið fullt af nýjum hugmyndum og verkfærum sem munu vonandi skila sér í enn frjórra safnastarfi.
 
Takk fyrir frábæra samveru og kærar þakkir til Félags íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS) fyrir virkilega fróðlegan og skemmtilegan farskóla!