Við viljum vekja athygli á næsta erindi í fyrirlestraröð Félags fornleifafræðinga og námsbrautar í fornleifafræði við Háskóla Íslands.
Erindið verður miðvikudaginn 25. febrúar n.k. kl. 12 en þá munu þær Ásta Hermannsdóttir (deildarstjóri fornleifadeildar Byggðasafns Skagfirðinga), Lísabet Guðmundsdóttir og Lilja Björk Brinks flytja erindið Verbúðalíf á Höfnum á Skaga.
Fyrirlesturinn fer fram í stofu A050 í Aðalbyggingu HÍ og hægt verður að fylgjast með streymi hér.