Það er gaman að segja frá því að Byggðasafn Skagfirðinga hlaut í gær sérstaka viðurkenningu frá CIE Tours vegna ánægju gesta með heimsókn á safnið.
Hvatningarverðlaun CIE Tours til framúrskarandi fyrirtækja í ferðaþjónustu voru veitt við hátíðlega athöfn á veitingastaðnum MAR Seafood í Reykjavík í gær, 24. febrúar. Þetta er í annað sinn sem verðlaunin eru veitt hér á landi en þau eru einnig veitt árlega í Bretlandi og á Írlandi.
Árið 2025 var þriðja árið í röð sem hópar frá fyrirtækinu sóttu Glaumbæ heim og þetta er jafnframt í þriðja skiptið sem safninu hlotnast þessi viðurkenning.
Verðlaunin byggja á umsögnum frá um 1.000 ferðamönnum sem koma árlega til Íslands á vegum CIE Tours, að mestu frá Bandaríkjunum. Verðlaun voru veitt í fimm flokkum, þau sem skora hæst í ánægju viðskiptavina hljóta gullverðlaun en einnig er veitt sérstök viðurkenning fyrir fyrirtæki sem hljóta yfir 90% ánægju meðal viðskiptavina.
„Með þessum verðlaunum viljum við heiðra þau fyrirtæki sem veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og stuðla að ánægjulegri dvöl þeirra á Íslandi“ segir Stephen Cotter framkvæmdastjóri CIE Tours.
„Það var virkilega ánægjulegt að veita verðlaunin hér á Íslandi, nú í annað sinn. Ísland býður upp á einstaka upplifun fyrir gesti okkar. Við höfum séð stöðugt vaxandi áhuga á Íslandsferðum og erum því stöðugt að þróa nýjar og sjálfbærar ferðir sem gera gestum kleift að upplifa það allra besta sem Ísland hefur upp á að bjóða.“
CIE Tours var stofnað á Írlandi árið 1932 og hefur á 94 ára ferli sínum skipulagt ferðir fyrir yfir þrjár milljónir ferðamanna til Írlands, Bretlands og víðar. Fyrirtækið hóf ferðir til Íslands árið 2019 og býður upp á ferðir um Suðurland en einnig hringferðir um landið með stoppi á Húsavík, Mývatni og Möðrudal svo dæmi séu tekin. Frá fyrstu ferð CIE Tours til Íslands hefur fyrirtækið komið með þúsundir ferðamanna til landsins. Fyrirtækið er eitt það stærsta í skipulögðum ferðum fyrir Norður-Ameríkumarkað.
Hér má sjá lista yfir sigurvegara:
| Gullverðlaun | |
| Best Overall Hotel | Fosshotel Reykjavík, Reykjavík |
| Best Overall Visit | Blue Lagoon |
| Best Overall Lunch | Fosshotel Glacier Lagoon |
| Best Hotel Accommodation | Fosshotel Vatnajökull, Höfn |
| Best Hotel Service | Fosshotel Reykholt |
| Sérstök viðurkenning (Icelandic Merit Award Winners) |
| Hótel |
| Fosshótel Eastfjords |
| Fosshótel Húsavík |
| Fosshótel Núpar |
| Heimsókn |
| Byggðasafn Skagfirðinga í Glaumbæ |
| Lava Centre |
| Möðrudalur Farm |
| Bjarteyjarsandur Farm |
| Secret Lagoon |
| Skógar Folk Museum |
| Vök Baths |
| Friðheimar Tomato Farm |
| Sel-Hotel Mývatn |
| Eldhestar Horse Farm |