Fara í efni

Byggðasafn Skagfirðinga hlýtur 7 milljónir úr safnasjóði

Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina í menningar-, nýsköpunar- o…
Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og Þóra Björk Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Safnaráðs úthlutaði styrkjum úr aðalúthlutun safnasjóðs við hátíðlega athöfn. Mynd: Dagrún Ósk Jónsdóttir.

Úthlutun úr safnasjóði fór fram í Myndasal Þjóðminjasafns Íslands í gær, 16. apríl, að viðstöddu fjölmenni þar sem styrkþegar tóku á móti viðurkenningarskjölum. Byggðasafn Skagfirðinga hlaut alls 7 milljón króna styrk úr Safnasjóði, þar af 5,5 milljónir í verkefnastyrki úr aðalúthlutun og 1,5 milljónir úr aukaúthlutun til fræðslu- og miðlunarstyrkja.

Öll viðurkennd söfn geta sótt um styrki til að efla starfsemi sína og til skilgreindra verkefna en viðurkenning safnaráðs er forsenda þess að söfn geti sótt um rekstrarstyrk úr safnasjóði.

Á fundi safnaráðs í desember sl. samþykkti ráðið tillögu um aðalúthlutun úr safnasjóði 2026 sem send var til menningarráðherra til samþykktar, en skv. 7. mgr. 22. gr. safnalaga úthlutar ráðherra styrkjum úr safnasjóði að fengnum tillögum safnaráðs. 

Styrkupphæðin til Byggðasafns Skagfirðinga samanstendur af styrkjum til nokkurra verkefna:

  • 2.500.000 kr - Mannlíf í torfbæjum fyrir öll: stafrænar og aðgengilegar heimsóknir með sýndarveruleika
  • 2.000.000 kr - Heildarskráning safnkosts
  • 1.000.000 kr - Úrbætur varðveisluskilyrða safngripa
  • 600.000 kr. - Námskeið í vefnaði
  • 300.000 kr - Torfhleðslunámskeið í Skagafirði
  • 300.000 kr. - Miðlun, markaðssetning og fræðsla
  • 300.000 kr - Innsýn í opin varðveislurými: starfsþróunarferð Byggðasafns Skagfirðinga 

Þessir styrkir munu koma sér afar vel og hjálpa til við að efla starfsemi safnsins. Við þökkum kærlega fyrir stuðninginn!