Fara í efni

Alþjóðlegur dagur óáþreifanlegs menningararfs

Í dag, 17. október, er alþjóðlegur dagur óáþreifanlegs menningararfs. Af því tilefni viljum við beina sjónum að einum merkasta þætti íslensks menningararfs; torfinu og þeirri aldagömlu handverksþekkingu sem felst í byggingu torfhúsa.

Um aldir var torf ein helsta undirstaða íslenskrar húsagerðar. Úr torfi og grjóti reistu Íslendingar hús sem veittu skjól fyrir veðri og vindum og gerðu fólki kleift að lifa við erfiðar aðstæður. Torfhúsin bera þannig vitni um útsjónarsemi, aðlögunarhæfni og einstaka þekkingu fyrri kynslóða á náttúrunni og þeim efniviði sem bauðst.

Torfarfurinn felst þó ekki aðeins í húsunum sjálfum. Hann lifir líka í handverkinu, þekkingunni á því hvernig velja á torf, skera það, hlaða úr því og halda byggingunum við. Þetta er kunnátta sem þróaðist í aldanna rás og barst frá einni kynslóð til annarrar með verklegri kennslu og reynslu.

Nú stendur þessi dýrmæti menningararfur á tímamótum. Torfhúsum fækkar, viðhaldsþörfin er mikil og sífellt færri búa yfir þeirri sérhæfðu þekkingu sem þarf til að varðveita þau. Ef handverkið glatast missum við ekki aðeins ómetanlegan óáþreifanlegan menningararf, heldur einnig möguleikann á að varðveita stóran hluta byggingararfs þjóðarinnar.

Byggðasafn Skagfirðinga hefur um áratugaskeið lagt ríka áherslu á rannsóknir, varðveislu og miðlun torfarfsins. Árið 2006 var Fornverkaskólinn stofnaður til að stuðla að varðveislu gamalla byggingarhefða og miðla verkþekkingu til nýrra kynslóða. Mikilvægi þess starfs var viðurkennt á alþjóðavettvangi fyrr á þessu ári þegar Fornverkaskólinn hlaut Evrópsku minjaverndarverðlaunin / Europa Nostra Awards 2026.

Viðurkenningar einar og sér tryggja hins vegar ekki framtíð torfarfsins. Til þess þarf meira en áhuga og elju fárra. Það þarf skýra ábyrgð, aukið fjármagn og markvissar aðgerðir af hálfu ríkisins til að tryggja viðhald torfhúsa og varðveislu þeirrar sérhæfðu handverksþekkingar sem þeim fylgir. Jafnframt þarf að leggja rækt við þekkingarmiðlun, vekja áhuga nýrra kynslóða á handverkinu og skapa þeim tækifæri til að tileinka sér það og halda því lifandi.

Það er okkar að tryggja að komandi kynslóðir geti ekki aðeins skoðað torfhús á myndum, heldur einnig séð þau með eigin augum, skilið hvernig þau voru byggð og búið yfir þeirri kunnáttu sem þarf til að halda þeim við um ókomna tíð.