Fara í efni

Alþjóðlegur dagur fornleifafræði

Í dag, 17. október, er alþjóðlegur dagur fornleifafræðinnar!

Af því tilefni viljum við beina sjónum að fornleifadeild Byggðasafns Skagfirðinga, sem hefur frá árinu 2003 unnið að rannsóknum, skráningu og varðveislu menningarminja í Skagafirði og víðar.

Stór hluti starfsins felst í fornleifaskráningu, þar sem minjar eru staðsettar, mældar, ljósmyndaðar og þeim lýst. Slík skráning er mikilvæg forsenda þess að hægt sé að taka tillit til fornleifa við skipulag og framkvæmdir og stuðla að verndun þeirra.

Samhliða skráningum hefur fornleifadeildin staðið fyrir og tekið þátt í fjölbreyttum uppgröftum, meðal annars í samstarfi við innlenda og erlenda rannsóknaraðila. Rannsóknirnar hafa varpað nýju ljósi á byggðar- og búsetusögu Skagafjarðar og líf fyrri kynslóða og stuðlað að aukinni þekkingu á menningararfi héraðsins.

Á rúmum tveimur áratugum hefur orðið til umfangsmikil þekking sem endurspeglast meðal annars í rannsóknarskýrslum deildarinnar, sem nú eru komnar yfir 300! Að baki skýrslunum liggur mikil vinna við vettvangsrannsóknir, skráningu, greiningu og úrvinnslu. Þær geyma mikilvægar upplýsingar sem nýtast við minjavernd, skipulagsvinnu, frekari rannsóknir, fræðslu og miðlun.

Fornleifarannsóknir eru mikilvægur þáttur í þekkingarsköpun Byggðasafns Skagfirðinga og skapa jafnframt grundvöll fyrir sýningar, fræðslu og miðlun á sögu héraðsins. Þannig styrkir starf fornleifadeildarinnar faglega stöðu safnsins og stuðlar að því að menningararfur Skagfirðinga sé rannsakaður, varðveittur og miðlað til komandi kynslóða.

Kynntu þér rannsóknarskýrslur fornleifadeildarinnar hér.