Þema alþjóðlega safnadagsins árið 2026 er „Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi“. Á tímum sundrungar, skautunar og ójafns aðgengis að þekkingu og menningu gegna söfn lykilhlutverki í að endurbyggja tengsl þvert á kynslóðir, samfélagshópa og landamæri. Þannig stuðla þau að samtali, skilningi, þátttöku og friði innan samfélaga og á heimsvísu.
Í tilefni dagsins, þann 18. maí næstkomandi, verður frítt á safnið kl. 16-18 og boðið upp á leiðsagnir og safnabingó.
Þá kynnum við til leiks nýjan matseðil í Áshúsi auk þess sem nú er hægt að gæða sér á göróttari drykkjum á kaffihúsinu þar sem það er komið með vínveitingarleyfi!
Lesa má nánar um alþjóðlega safnadaginn hér: https://icom.is/safnadagurinn/
Hlökkum til að sjá ykkur!