Matarkistan Skagafjörður lét sig auðvitað ekki vanta á Landbúnaðarsýninguna 2026 sem haldin var í Laugardalshöll dagana 9.–11. október!
Yfirskrift sýningarinnar í ár var Íslenskur landbúnaður 2026 og þar var fjölbreytni íslensks landbúnaðar og matvælaframleiðslu í sviðsljósinu. Sýningin var afar vel sótt en talið er að um 60–70 þúsund gestir hafi lagt leið sína í Laugardalshöllina yfir helgina!
Á bás Matarkistunnar gátu gestir kynnt sér girnilegar vörur frá KaffiKorg, Birkihlíð kjötvinnslu og StórhólI- Beint frá býli. Þá voru Sölvanes og Breiðargerði garðyrkjustöð einnig á staðnum og kynntu sínar gómsætu vörur undir merkjum Lífrænt Ísland, handan við hornið frá Matarkistunni!
Matarkistan Skagafjörður er samstarf fjölbreyttra matvælaframleiðenda í Skagafirði sem vinna saman að því að efla skagfirska matarmenningu og koma henni á framfæri. Sýningar sem þessar eru því kjörinn vettvangur til að kynna allt það góða sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða!
Kærar þakkir til allra framleiðendanna sem lögðu sitt af mörkum til þátttökunnar á sýningunni og að sjálfsögðu til allra þeirra sem lögðu leið sína um bás Matarkistunnar!



