Fara í efni

Sumar- og Vetrardagur í Glaumbæ

Í þessum sögum fylgjum við tveimur börnum og heimilishundinum einn dag í lífi þeirra. Sögusviðið er Glaumbær, prestsetur í Skagafirði, sem taldist til efnameiri bæja með tilheyrandi umsvifum. Sögurnar eru að mestu byggðar á raunverulegu fólki sem bjó í Glaumbæ og Skagafirði á 19. öld. 
 
Þrátt fyrir að einungis séu um 140 ár frá því sögurnar eiga að hafa átt sér stað hefur daglegt líf fólks tekið gríðarlegum breytingum og er fátt sambærilegt í lífi fólks þá og nú. Sumt breytist þó ekki í tímans rás – eins og fjölskyldubönd, þörf fyrir öryggi, vinskap, gæðastundir og hlátur, og ekki síst ánægjan við að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn.
 

Óumbeðin en mikilvæg meðmæli!
Ég rakst á auglýsingu um þessar barnabækur, sem Byggðasafnið í Skagafirði gefur út, fyrir algjöra tilviljun. Stundum koma nefnilega bestu bækurnar út fyrir utan deigluna og fara því fyrir ofan garð og neðan hjá fólki. Ekki láta það gerast í þessu tilfelli!
Fyrir minn smekk eru þetta eiginlega fullkomnar barnabækur. Myndirnar eru fallegar og sögurnar fullar af töfrunum sem fylgja því að vera barn. Vissulega er heimur barnanna í bókunum fjarri okkur í tíma, en þá kemur sér svo vel að börn hafa ekki glatað ímyndunaraflinu. Þær draga líka línuna frá gamla tímanum til nútímans og halda þannig þráðunum saman.
Eins er í þeim allskonar fróðleikur fyrir þau sem eldri eru, enda byggja þær á raunverulegum sögum og munum sem geymd eru á byggðasafninu. Mæli ítrekað með.

- Harpa Rún Kristjánsdóttir, bókmenntafræðingur

Festa kaup á bókum

Vinsamlegast tilgreinið í athugasemdum hvaða tungumáli er óskað eftir; íslensku, ensku, frönsku eða þýsku.

Endursöluaðilum og skólum er bent á að hafa samband við safnið í síma 453 6173 eða byggdasafn@skagafjordur.is.

Sumardagur í Glaumbæ

Í þessari sögu, sem kom út haustið 2021, fylgjum við ungum dreng, vinkonu hans og heimilishundinum einn dag í lífi þeirra. Upplýsingar um heimilisfólkið byggja á lýsingum í Skagfirzkum æviskrám og lýsingar á förufólkinu Myllu-Kobba, Rönku og Ropa-Katrínu eru ýmist fengnar úr hljóðskrám af ísmús.is eða ævisögunni Tvennir tímar, endurminningum Hólmfríðar Hjaltason eftir Elínborgu Lárusdóttur.

Í sögunni er leitast við að draga fram raunverulegar frásagnir og lýsingar út frá heimildum og gæða þær lífi. Ýmis þjóðlegur fróðleikur og atburðir, t.d. frásögnin um skapstyggu próventukerlinguna í Gusu, eru byggðir á smáritum Byggðasafns Skagfirðinga eftir Sigríði Sigurðardóttur. Bókin endar á nokkrum erindum úr Kvöldhugvekju eftir Sigurð Breiðfjörð (1798–1846), eins afkastamesta ljóða- og rímnaskálds 19. aldar.

Ærslagangur og ímyndunarleikir á ganginum í Glaumbæ. Mynd/Jérémy Pailler

Vetrardagur í Glaumbæ

Vetrardagur sem kom út haustið 2023 er sjálfstætt framhald sögunnar Sumardagur í Glaumbæ þar sem Jóhanna er í aðalhlutverki. Í þessari ríkulega myndskreyttu sögubók er Glaumbær sveipaður vetrarbúningi og við fylgjumst með Jóhönnu, Sigga og Ysju við jólaundirbúning. Í sögunni er leitast við að draga fram raunverulegar frásagnir og lýsingar út frá heimildum, líkt og í Sumardegi, og gæða þær lífi.