Fara í efni

Flutningar á gripum safnsins í Borgarflöt

Vörubrettum raðað í bílinn.

Í gær hófust flutningar á gripum safnsins úr Minjahúsinu á Sauðárkróki í bráðabirgðavarðveislurýmið á Borgarflöt. Um er að ræða 220 bretti með gripum sem þarf að flytja. Fyrstu ferðirnar gengu vel í góðu veðri og vonum við að veðurguðirnir verði áfram með okkur í liði á meðan á flutningum stendur. 


 Fyrstu brettunum trillað inn í blíðviðri, starfsmönnum Byggðasafnsins til mikillar gleði.