Fara í efni

Afmæli Mark Watson

Í tilefni af afmæli enska aðalsmannsins Mark Watson mánudaginn 18. júlí stendur Byggðasafn Skagfirðinga fyrir dagskrá í Glaumbæ.

Watson var mikill Íslandsvinur og er honum margt að þakka, þar með talið rausnarleg peningagjöf til viðgerða á gamla torfbænum í Glaumbæ árið 1938 sem átti sinn þátt í að bærinn er enn varðveittur. Watson hefur jafnframt verið titlaður bjargvættur íslenska fjárhundakynsins og er afmælisdagur hans "Dagur íslenska fjárhundsins". Af því tilefni ætla íslenskir fjárhundar að heimsækja safnið. Hundarnir eru ljúfir og spakir og óhætt er að klappa þeim með leyfi eigenda.

Dagskráin hefst klukkan 14 og stendur til klukkan 16 síðdegis. Ungum gestum verður boðið á bak á hestum frá Syðra–Skörðugili. Klukkan 14:30 verður boðið uppá sögustund um afmælisbarn dagsins, Mark Watson.

Eigendur íslenskra fjárhunda eru hvattir sérstaklega til að líta við, en í tilefni dagsins er frítt á safnið fyrir eigendur íslenskra fjárhunda í fylgd með hundunum.

Ókeypis aðgangur er fyrir börn yngri en 18 ára og við minnum lögheimilisíbúa Skagafjarðar á ársmiðann, sem gildir í eitt ár frá kaupum hans óháð fjölda heimsókna.

Opið er á kaffihúsi safnsins í Áshúsi en þar er alltaf heitt á könnunni og nýbakað góðgæti.

Verið velkomin á Mark Watson daginn og Dag íslenska fjárhundsins í Glaumbæ!

 

English:
Mark Watson Day will be celebrated at Glaumbær on Monday July 18th.

To celebrate the birthday of Scottish benefactor Mark Watson, the Skagfjörður Heritage Museum will host festivities at Glaumbær.

Watson was a great friend to Iceland who generously donated money for repairs to the old turf farm at Glaumbær in 1938. The turf farm is preserved today because of Watson´s contributions. Watson is also recognized as the savior of the Icelandic Sheepdog breed. Therefore, his birthday is also, "Icelandic Sheepdog Day". To celebrate, Icelandic sheepdogs will visit the museum. The dogs are sweet, smart, and friendly. It is safe to pet them with the owners´ permission.

The day's festivities start at 2 pm and last until 4 pm. Young guests are invited to ride horses from Syðra – Skörðugil. At 2:30 pm there will be a guided tour about the birthday boy, Mark Watson.

The museum's café in Áshús will be open where there is always hot coffee and freshly baked delicacies.

Welcome to Glaumbær!