Sýningar Byggðasafns Skagfirðinga

Fastasýning safnsins er Mannlíf í torfbæjum, sem opnuð var í gamla bænum í Glaumbæ 15. júní árið 1952. Sérsýningar um útskurðheimilishald 1900-1950, og 300 ára kaffisögu eru í Áshúsinu við Glaumbæ.

Sýningin  Annað land - Annað líf, Vesturheimsferðir 1870-1914sem byggðasafnið setti upp árið 1996 fyrir Vesturfarasetrið á Hofsósi, er í Húsinu á Sandi. Stór hluti sýningargripa í sýningu Söguseturs íslenska hestsins á Hólum í Hjaltadal er frá Byggðasafni Skagfirðinga.
Auk þessara sýninga hafa verið settar upp nokkrar tímabundnar sérsýningar á umliðnum árum. Sjá eldri sýningar.

Glaumbær  |  551 Sauðárkrókur  |  Sími 453 6173  |  byggdasafn@skagafjordur.is