Fara í efni

Starf deildarstjóra fornleifadeildar laust til umsóknar

Deildarstóri fornleifadeildar

Byggðasafn Skagfirðinga óskar eftir að ráða fornleifafræðing til starfa. Leitað er eftir öflugum og metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn að hafa yfirumsjón með rannsóknarstarfsemi Byggðasafns Skagfirðinga á sviði fornleifafræði, í samstarfi við safnstjóra og í samræmi við stofnskrá safnsins og samþykkta safnstefnu.

Deildarstjóri fornleifadeildar (deildarstjóri 1 – BHM-11) annast daglegan rekstur fornleifadeildar, í því felst umsjón og fjármögnun verkefna, stefnumótun, rannsóknastarfsemi og miðlun. 

Umsækjendur skulu hafa lokið mastersprófi í fornleifafræði og gerð er krafa um starfsreynslu og þekkingu á rannsóknaraðferðum. Reynsla af stjórnun fornleifarannsókna og –skráningarverkefna er æskileg, sem og þekking á landupplýsingakerfum. Bílpróf er skilyrði.

Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum sem og skipulagshæfni. Lipurð í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar. Gott vald á ensku og íslensku, í ræðu og riti, er nauðsynleg.

Um er að ræða 100% starf. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 15. desember 2019.

Nánari upplýsingar má finna á vef Sveitarfélagsins Skagafjarðar og með því að hafa samband við safnstjóra, Berglindi Þorsteinsdóttur, 453 6173, berglind@skagafjordur.is