Fara í efni

Safngestum fækkar

Ef fer fram sem horfir má reikna með töluvert færri gestum á safnsýningar í gamla bænum í Glaumbæ og Áshúsinu á þessu ári en var í fyrra. Tölur fyrstu fimm mánuði ársins gáfu þetta ekki til kynna en tala gesta í júní má túlka þannig. Þar sem afkoma safnsins byggist að mestum hluta á aðgangseyri frá safngestum mun fækkun gesta hafa einhver áhrif á starfsemina, þar sem fremur var gert ráð fyrir fjölgun en fækkun, á milli ára.

Á grafinu, sem sýnir yfirlit gestafjölda frá 2010-2017, sést að fjölgun gesta í fyrstu fimm mánuðunum er stígandi en júnígestum hefur fækkað.