Fara í efni

Mark Watson, íslenski fjárhundurinn og Glaumbær

Deild íslenskra fjárhundaeigenda heldur málþing sem helgað er Mark Watson og aðkomu hans að varðveislu íslenska fjárhundakynsins. Málþingið er haldið í sal Þjóðminjasafns Íslands í hádeginu í dag, þann 18. júlí, en dagurinn hefur verið útnefndur dagur íslenska fjárhundsins. Þar verður Marks Watsons minnst m.a. með framlagi frá Byggðasafni Skagfirðinga.