Fara í efni

Annasamt sumar

  Eins og undanfarin sumur hafa starfsmenn Fornleifadeildar aðstoðað byggðasöguritara við rannsóknir og skráningar forn- og eyðibýla. Þessi mynd er tekin úr flygildi (dróna) sem tekinn var í notkun í sumar. Þetta er Tjarnarkot í Sléttuhlíð.
  Samtals 25 manns komu að Skagfirsku kirkjurannsóknninni (ScASS) á þessu sumri og unnu við fornleifauppgröft í Keflavík og fornleifarannsóknir og -skráningar í Hegranesi. Einnig hafa verið skráðar fornleifar í Hrolleifsdal, Flókadal, Jökuldal og á Héraði. Þeir ellefu starfsmenn sem voru við móttöku gesta höfðu þann 31. ágúst tekið á móti samtals 39.218 gestum, 2.279 í Minjahúsinu og 36.939 í Glaumbæ. Fjölgað hefur um 3.877 gesti á milli ára í Glaumbæ, miðað við sama dag í fyrra, en þeim hefur hinsvegar fækkað í Minjahúsinu og munar þar um að 1.330 færri leituðu upplýsinga þar, nú í sumar, miðað við í fyrra.


Minjahúsvöktum er lokið þetta sumarið en opnað er ef óskað er eftir því. 
Í Glaumbæ verður opið alla daga til 20. september, milli 9 og 18. Frá 21. september til 23. október verður gamli bærinn í Glaumbæ opinn milli 10 og 16 alla virka daga.  
Áskaffi verður opið alla daga til 15. september, milli 11 og 17.