![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Það er um margt gott að velja.
Auk þess sem boðið er upp á rjúkandi súkkulaði, te og ýmsa aðra drykki en kaffi.
Æskilegt er að hópar panti hádegiskaffi með góðum fyrirvara.
Meðal þess sem er í boði eru:
- kúmenkleinur
- upprúllaðar pönnukökur
- pönnukökur með rjóma og sultu (rabbarbarasultu)
- sérrýterta með ferskjum, rjóma og súkkukaði
- ostakaka með fersku sítrónubragði
- skyrterta með drottningarsultu
- vínarterta með rabbarbarakremi og brún lagterta með hvítu smjörkremi
- steikt brauð með reyktum laxi
- rúgbrauð með reyktum laxi eða hangikjöti
- kaka dagsins, sem getur verið hvaða hnallþóra sem er
Ásamt mörgu fleira góðgæti.