Hver gripur, hver minning, hvert merki um mannlíf er fjársjóður fyrir framtíðina ef vel er varðveitt. Allt hefur þó sín takmörk. Ekki er endalaust hægt að taka við munum og rannsóknir, miðlun og varðveislu þarf að sníða að möguleikum hverju sinni.
Markmið Byggðasafns Skagfirðinga er að safna, skrá, varðveita og rannsaka muni og minjar sem hafa sögulegt gildi fyrir íbúa Skagafjarðar og miðla upplýsingum um þau. Lögð er áhersla á að safna og varðveita heildir um mannlíf, heimilishald, landnýtingu og horfna starfshætti og á það sem kalla má einkenna daglegt líf, híbýli, matargerð í torfbæjum og hreinlæti, torfvinnu og torfhleðslu, félags- og menningarsögu.
Fjöldi nemenda af öllum skólastigum sækir fræðslu til safnsins, sem tekur á móti fróðleiksfúsum hópum og einstaklingum allan ársins hring eftir því sem aðstæður leyfa. Ef leitað er eftir sérstöku efni, öðru en því sem felast í sýningum safnsins, eða útgefnu efni, þá er bara að senda inn fyrirspurn á byggdasafn@skagafjordur.is eða hringja í síma 453 6173.
Safnið á gott samstarf við ýmsar stofnanir, félög og einstaklinga, sem eflir og auðgar starfsemi safnsins á margvíslegan hátt. Samstarfsverkefnin eru af ýmsum toga. Svo sem við: Áskaffi frá árinu 1995, Vesturfarasetrið frá 1996, Sögusetur íslenska hestsins ses frá 2001, eigendur Tyrfingsstaða frá 2007 og Félagið á Sturlungaslóð frá 2008. Fornverkaskólinn hófst sem samstarfsverkefni Byggðasafnsins við Tréiðnadeild Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Ferðamáladeild Háskólans á Hólum árið 2007 en hefur þróast í sérverkefni innan safnsins.
Safnstefnuna í heild sinni má nálgast hér.